%>

 
 
 

Handhafi Eyrarrósarinnar 2008
Aldrei fór ég suður.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar Reykjavík, Byggðastofnunnar og Flugfélags Íslands veitt fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.

Þjónusta, gisting, veitingar

Skrifað: 29-01-07

Hvar er hægt að gista?

Á Ísafirði er að finna Hótel og nokkur gistiheimili:
Hótel Ísafjörður - www.hotelisafjordur.is
Gamla gistihúsið - www.gistihus.is
Litla gistihúsið - reginasc@simnet.is

Fyrir gesti á bílum mælum við einnig með mjög skemmtilegum gistimöguleikum í minna en 30 mín akstursfjarlægð frá Ísafirði:

Íbúðagisting í Bolungarvík - www.bolungarvik.com
Kirkjuból í Önundarfirði - www.kirkjubol.is
Korpudalur í Önundarfirði - www.korpudalur.is
Fisherman á Suðureyri - www.fisherman.is
Hótel Núpur í Dýrafirði - www.hotelnupur.is 
Við Fjörðinn á Þingeyri - www.vidfjordinn.is
Gistiheimilið 66 Suðureyri - gisting@66guesthouse.is

Hvað er hægt að borða á Ísafirði?

Hægt er að fá alls kyns skyndibita í miðbæ Ísafjarðar, m.a. í sjoppunni Hamraborg og á veitingastaðnum Thai Koon. Á Hótel Ísafirði er hægt að fá kaffi, rétti af matseðli og fleira. Þá eru tvö bakarí í miðbænum fyrir þá sem vilja bakkelsi, og Samkaupsverslun. Þeir sem eru sérlega blankir geta rölt inn í fjörð og farið í Bónus.
Tvær krár/kaffihús eru á Ísafirði; Krúsin í kjallara Alþýðuhússins og Kaffi Edinborg í Edinborgarhúsinu þar sem einnig er hægt að kaupa ýmsa létta rétti.

Er eitthvað fleira um að vera á Ísafirði?

Á Ísafirði er alltaf eitthvað um að vera. Um páskana er hin árlega skíðavíka haldin og á dagskrá hennar finna allir sér eitthvað við hæfi. Kynntu þér skíðavikuna á www.skidavikan.is

Allar nánari upplýsingar má fá á Upplýsingamiðstöð ferðamála á Ísafirði: info@vestfirdir.is og 450-8060.

til baka