Enn einni hátíðinni lokið
Skrifað: 27-03-08Jæja, þá er enn einni hátíðinni lokið og skipuleggjendur og sjálfsboðaliðar komnir vel áleiðis í tiltekt eftir herlegheitin. Hátíð sem þessi verður ekki að neinu nema með aðkomu góðra manna og vilja skipuleggjendur þakka kærlega sínum aðal styrktaraðilum; Flugfélagi Íslands, Símanum og Glitni, aðstandendum Eyrarrósarinnar, Menningarráði Vestfjarða, AÓÁ útgerð eigendum skemmunnar, poppurum sem komu fram og þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum sem komu að hátíðinni. Hægt er að nálgast myndir af hátíðinni meðal annars á monitor.is/aldrei, og innan tíðar verður það einnig hægt á ljósmyndavef bb.is. Rokkstjóri kveður og þakkar fyrir sig.









