Hvers vegna að keyra þegar hægt er að labba eða taka strætó?
Skrifað: 02-04-09Eins og komið hefur fram verður Aldrei fór ég suður haldin í nýju húsnæði KNH á Grænagarði og vilja aðstandendur biðja væntanlega gesti um að koma ekki akandi á tónleikastað nema þeir þurfi.Ef mikill fjöldi bíla er notaður er fyrirsjáanlegt að bílastæðavandamál og umferðarhnútar geti skapast. Auðvelt er að labba að Grænagarði, sérstaklega nú þegar lagður hefur verið myndarlegur göngustígur frá Eyrinni og að Holtahverfi. Leiðin er stutt, rétt rúmlega kílómetri, og er fullhraustu fólki lítil vorkunn að þurfa að ganga þá vegalengd. Þá verður strætisvagn á ferðinni milli miðbæjar og Grænagarðs og er hægt að taka far með honum gegn hóflegu gjaldi. Nánari upplýsingar um þær ferðir verða birtar hér á síðunni á allra næstu dögum.
Þeir sem þurfa að koma akandi eru þó boðnir velkomnir eins og aðrir og þeim bent á að bílastæði verða í kringum Netagerðina, við Áhaldahúsið og við Orkubú Vestfjarða, auk þess sem hægt verður að leggja nokkrum bílum á gamla Seljalandsveginum. Skorað er á fólk að samnýta bílana eins og mögulegt er og umfram allt að vanda sig við að leggja þeim. Þá eru menn beðnir um að stilla forvitninni í hóf og reyna að standast freistinguna að rúnta inneftir til þess eins að tékka á stemmningunni. Tekið skal fram að stranglega bannað verður að stöðva bíla á Skutulsfjarðarbraut, hvað þá að leggja þeim í vegkantinn.









