Fílingurinn magnast
Skrifað: 03-04-09Nú fer að renna upp lokavika í undirbúningi fyrir Aldrei fór ég suður. Seinni partinn í dag verður popparahittingur á skemmtistaðnum Karamba í Reykjavík. Plokkari frá hæstvirtum sjávarréttaráðherra, Magnúsi Haukssyni, var sendur suður með flugpósti í morgun svo enginn ætti að verða svangur.
Stuðið magnast, fílingurinn eflist og stemmarinn vex með hverjum deginum sem líður. Skorað er á fólk að halda áfram heimalærdómnum og kynna sér þær hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni í ár. Það er oft skemmtilegra að sjá myndina þegar maður er búinn að lesa bókina.









