❤️ T A K K ❤️

Okkar litla tónlistar- og fjölskylduhátíð, sem sett var á laggirnar fyrir 22 árum, fór fram á Ísafirði á páskahelginni. Fjöldi gesta hefur vart verið meiri og stemningin var gjörsamlega frábær. Við sem stöndum að hátíðinni erum með frosið bros og endalaust þakklát!

Við erum ótrúlega stolt af öllu því góða tónlistarfólki sem fram kom á hátíðinni ekki síður öllum okkar gestum sem eru alltaf til algjörs sóma.

Kampi, Ísafjarðarbær, Icelandair, Orkubú Vestfjarða, Landsbankinn, Kerecis, Eimskip, 66°Norður, Tónlistarsjóður og Rás 2 - takk fyrir að standa með okkur.

Við fengum frábæra aðstoð úr mörgum áttum í ár; Vesturferðir hýsti okkur, Ísafjarðarhafnir redduðu endalaust, Hertz skutlaði, Luxor sá um sándið, Nettó sá um aðföngin, CCEP um drykkina, West Travel ferjaði popparana okkar og skilaði þeim m.a.s. til Reykjavíkur eftir helgi, Snerpa tengdi, Laugi hífði, Húsið nærði okkur, Tjöruhúsið einnig, Hótelið og Hamraborg, HG, Rafskaut, GSF, RÚV, Húsasmiðjan, Vélsmiðja Þrastar Massa og Patrekur Rafn, Vestfirskir, Nói og Síríus, Góa, Eiríkur kokkur … og nánast hver einasti einstaklingur og fyrirtæki í okkar góða samfélagi studdi okkur. Maður gerir ekki rassgat einn!

Páskarnir eiga heima á Ísafirði - sjáumst 26.- 27. mars 2027 !