ALDREI VERSLUNIN OPNAR
Í ár fögnum við Stuði í stofu í nostalgíukasti með okkar nánustu, verslum Aldrei varning, drekkum Aldrei bjór og horfum á brot af því besta frá síðustu árum.
Aldrei búðin er á sínum stað, samt annarsstaðar en síðast og þarsíðast, hún opnar kl. 13:00 í dag, laugardag, í Bryggjusal Edinborgarhússins og verður opin til kl. 18:00. Planið er svo að hafa búðina opna frá kl. 13 á hverjum degi næstu vikuna.
Það verður líka Aldrei vefverslun fyrir þá sem ekki komast í búðina okkar, hún fer í loftið bráðum, bara um leið og hún er tilbúin.
Aldrei f(b)jórpakk er eitthvað sem við mælum með að fólk tékki á í Bjórlandi. Vinir okkar í Dokkan brugghús smelltu í smá gleði með okkur.
Hoppum inn í páskavikuna sullandi bullandi kát og gírum okkur upp í stuð í stofu. Pössum samt allar sóttvarnir, höldum 2 metrum, 10 manna hámarki, notum Aldrei Aftur grímur (þær fást í búðinni) og sprittum okkur hátt og lágt!