SJÁUMST Á GULLKISTUNNI!

Aldrei fór ég suður verður að sjálfsögðu með bás á Gullkistunni, atvinnulífs- og menningarsýningunni sem haldin verður á Ísafirði laugardaginn 6. september.

Við lofum þrumustuði og góðri stemningu í bás númer 9 þar sem við verðum með varning til sölu og óvænta glaðninga.

Sjáumst á Gullkistunni!

📍 Staðsetning: Íþróttahúsið Torfnes, Ísafirði

📅 Dagsetning: Laugardagurinn 6. september 2025

🕛 Tími: Kl. 12–17