HÚFUFRÉTTIR
Eins og þau ykkar sem hafa komið við í Aldrei-búðinni okkar hafið mögulega tekið eftir voru ekki gerðar nýjar húfur fyrir Aldrei 2022. Ástæðan er fyrst og fremst að við vildum vera pínu umhverfisvæn og koma húfum fyrri ára í umferð áður en við ráðumst í framleiðslu á nýjum.
Það er semsagt til böns af húfum í búðinni, með bleikum, grænum, gulum texta og endurskinstexta.