ÞESSI SPILA Á ALDREI 2020!
Aldrei fór ég suður væri ekki sú hátíð sem hún er í dag ef ekki væri fyrir bæjarbúa og velvild þeirra í garð hennar.
Það eru allir svo til í þetta!
Það sést hvergi betur en í myndbandinu sem við vorum að gefa út í dag til að kynna þá listamenn sem munu spila á hátíðinni í ár.
Ásgeir frá Gústi Productions ásamt fleiri góðum fóru á kreik með myndavél og náðu nokkrum góðum ísfirðingum við störf og leik.
Frábært myndband sem kynnir þá tónlistarmenn sem koma fram í ár ásamt því að sýna stemninguna sem ríkir í bæjarfélaginu þegar kemur að tónlistarhátíð alþýðunnar.
Sjáumst á ALDREI!