Chögma

Chögma er nokkuð ung hljómsveit sem hefur þó stimplað sig rækilega inn á þungarokkssenuna á Íslandi þar sem hún hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn og fjölbreyttan hljóm. Austfirðingarnir leggja nú land undir fót alla leið til Ísafjarðar og við gerum ráð fyrir að rokkþyrstir skemmugestir taki vel á móti þeim!