Falinn gjóður

Hljómsveitin Falinn gjóður er sigurvegari Músíktilrauna 2026. Sveitina skipa þeir Aron Elí Arnarsson, bassi og söngur, Baldur Þórarinsson, hljómborð og söngur og Þorri Hrafnsson, rafmagnsgítar. Meðlimir Falins gjóðs eru allir í 10. bekk og sækja innblástur sinn meðal annars til Þursaflokksins og Frank Zappa. Við hlökkum mikið til að taka á móti þessu glænýja bandi í skemmunni!