HÚFUR, HÚFUR, HÚFUR!

Já gott fólk, við erum auðvitað með húfur í ár, líkt og fyrri ár, og leyfum okkur að segja að 2023 árgerðin sé með þeim glæsilegri sem litið hefur dagsins ljós.

Við fengum nokkra af listamönnum ársins til að skella húfunum á kollinn til að sýna þær í allri sinni dýrð. Sala á húfunum hefst einmitt á morgun, föstudaginn 31. mars, í búðinni okkar í Aðalstræti 20 (kort) á Ísafirði. Búðin opnar kl. 13 og verður svo opin alla daga fram að páskum.

Previous
Previous

AÐ ALAST UPP MEÐ ALDREI: HÁTÍÐIN HEFUR ALLTAF VERIÐ KÚL

Next
Next

SPJALLAÐ VIÐ OFURAÐDÁANDA: „ALDREI ER ALLTAF VEISLA“